Norge
Ráðherra símenntunar?
Þegar Øystein Djupedal lét af embætti sem þekkingarráðherra í október varð að kalla tvo til þess að leysa þau verkefni sem honum höfðu verið falin.
Tora Aasland er ráðherra rannsókna og æðri menntunar og
Bård Vegar Solhjell er þekkingarráðherra og fer með málefni leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. En þau skipta starfsfólki eins ráðuneytis á milli sín. Hvergi er minnst á fullorðinsfræðslu, fræðslu á vinnustöðum og alþýðufræðsluna í kynningu á nýju ráðherrunum og starfssviðum þeirra. Spenna ríkir um hvort einhver ráðherra beri ábyrgð á þessum sviðum. Djupedal var einn fárra ráðherra sem hefur látið sig svið símenntunar sérstaklega varða.
Nánari upplýsingar um ráðherrana:
www.regjeringen.no/nb/dep/kd.html?id=586
E-post: Ellen.Stavlund(ät)vofo.no