Norge
Lestrar- og ritunarfærni fyrir atvinnulífið á Norðurlöndunum
LENA – Lestrar- og ritunarfærni fyrir atvinnulífið á Norðurlöndunum er lítið verkefni sem er fjármagnað af Nordplus voksen áætluninni.
Markmiðið með verkefninu er að safna saman reynslu sem getur komið þeim sem bjóða fyrirtækjum upp á námskeið í lestri og ritun að gagni. Með öðrum orðum beinir verkefnið sjónum að hinum viðkvæmu samskiptum á milli skóla og atvinnulífs. Verkefnastjórnin, sem í eru danskir og norskir fulltrúar, gerir tilraun til þess að miðla ráðum sínum og reynslu á heimasíðu verkefnisins sem nýlega var opnuð:
www.statvoks.no/lena/Verkefninu lýkur með ráðstefnu hjá Vox dagana 27. – 28. september. Vonast er til að þar takist að vinna að umsókn um áframhald vinnunnar í breiðara samstarfi á Norðurlöndunum. Vox hefur haft umsjón með verkefninu og þeir sem hafa áhuga á að taka þátt geta haft samband við
Kari H. A. Letrud – kari.letrud(ät)vox.no eða
Jan Sørlie – jan.sorlie(ät)vox.no
E-post: Ellen.Stavlund(ät)vofo.no