NVL
Erindi og málstofur um aðferðir við raunfærnimat
Ráðstefna NVL og FA með norrænu sjónarhorni 4. maí í Reykjavík
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og NVL halda ráðstefnu um mat á raunfærni 4. maí n.k. Fyrir hádegi mun sérfræðingahópur NVL um raunfærnimat gera grein fyrir stöðunni á Norðurlöndum og segja frá verkefnum sem hafa tekist vel. Eftir hádegisverð mun Patric Werquin frá OECD fara yfir útlitið í Evrópu og Ingbjörg Elsa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri FA kynna tillögur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um þróun raunfærnimats til menntamálaráðuneytisins. Að lokum verða málstofur þar sem fulltrúar úr ýmsum tilraunaverkefnum segja frá reynslu sinni af raunfærnimati á Íslandi.
Sigrún Kr. Magnúsdóttir
E-post: sigrunkri@frae.is